Sjósetning
Kópur HF 118 var sjósettur 01. júní 2011 í Keflavík Þar var hann prófaður og tæki stillt.
Báturinn var síðan skráður á B svæðið til strandveiða.
Hann var báturinn síðan fluttur landleiðina til Hólmavíkur og síðan silgt til Drangsnes, þar sem endanlegar prófanir og stillingar fóru fram.
Þar sem ég er ættaður í móðurætt frá Eyjum og föður ætt frá Grímsey var haldið til Grímseyjar til læra á handfæraveiðar hjá frændum mínum og fleirum.
En ég er fæddur og uppalin í Eyjum og hafði aldrei kynnst handfæra útgerð bara útgerð á 90 tonna bát sem hét Kópur VE 11
Fyrsti fiskurinn
Já það var smá þorskur, en því fylgir smá saga. Þannig var að börnin mín gáfu okkur spún í fánalitunum og á hann var grafið nafn og númer bátsins þannig að það kom ekkert annað til greina en að fyrsti fiskurinn væri veiddur á þennan spún og síðan færi hann í ramma og væri aldrei notaður aftur.
Það heppnaðist út frá Drangsnesi að við fengum lítinn þorsk en eins og allir vita þá skiptir stærðin ekki máli, en því er ekki að neita að við vorum með í maganum því maður veit aldrei með festur og að við myndum glata þessum forláta spún.
En þessi forláta spúnn á líka sögu því hann var ekki keyptur í búð heldur voru börnin í sumarhúsi í smálöndunum í Svíþjóð þar sem þau fundu spúninn einan og yfirgefinn.
Grímsey
Á fyrstu strandveiði vertíðinni var róið, frá Grímsey þessi mynd er tekin 10. ágúst sem var næst síðasti dagur strandveiða.
Aflinn var ekkert slor eða 814 kg. af Ufsa, 30. kg. af Ýsu, 279 kg. af þorski og 38 kg. af Karfa.
Við lönduðum alltaf slægðu svo þetta var hellings vinna með þetta magn en það viktaði óslægt 1.161 kg. en þar fórum við yfir leyfilegan dagsskammt og þurftum þar af leiðandi að greiða sekt í ríkissjóð en í heild á vertíðinni þetta árið skeði það tvisvar að við komum með of mikið að landi.